Ágætis Byrjun

Home » Music » Sigur Rós » Ágætis Byrjun

Svefn-G-Englar

  ég
er kominn aftur
  á ný
inn í þig
  það er
svo gott að vera
  hér/til
en stoppa stutt við

Ég flýt um í neðansjávar hýði
  á hóteli
beintengdur við rafmagnstöfluna
  og nærist

– Tjú tjú –

en biðin gerir
  mig leiðan
brot hættan

sparka frá mér
  og kall á
verð að fara
  hjálp

– Ég spring út og friðurrinn í loft upp –

baðaður nýju ljósi
ég græt og ég græt - aftengdur
ónýttur heili settur á brjóst
og mataður af sevfn - G - englum

Starálfur

Blá nótt yfir himininn
blá nótt yfir mér
horf-inn út um gluggann minn með hendur
faldar undir kinn
hugsum daginn minn í dag og í gær

Blá náttfötin klæða mig í
beint upp í rúm
breiði mjúku sængina
loka augunum
ég fel hausinn undir væng

starir á mig lítill álfur
hleypur að mér en hreyfist ekki
ur stað – sjálfur – starálfur

Opna augun stírurnar úr
teygi mig og tel (hvort ég sé ekki)
kominn aftur og alltalltilæ
samt vantar eitthvað
eins og alla veggina

Flugufrelsarinn

Hamagangur ég þusti niður að læknum bjargvættur
ég gerði skip tilbuið og fór með litla bæn því ég var hræddur
sólin skein og lækurinn seytlaðí sóley - sóley flugurnar drepast

en í dag á ég að bjarga sem flestum flugum
með spotta í skip ég er með í hvorri hendi ákveðinn
ég kasta þeim út í hylinn og reyni að hala flugurnar inn áður
en seiðin ná til þeirra bar sem þær berjast við strauminn og vatnið

þannig líður dagurinn sjálfur kominn um borð varfarinn
að berjast við bæjarlækinn sem hafði þegar deytt svo margar
ég næ ekki andanum og þyngist við hverja öldu
mér vantar kraftaverk þvi ég er að drukkna

syndir, ég reyni að komast um borð

ég dreg í land og bjarga þvi sjálfum mér aftur á bakkann
á heitan stein ég legg mig og læt mig þorna a ný
ég kasta þeim út hylinn og reyni að hala flurgurnar inn áður
en seiðin ná til þeirra þar sem þær berjast við strauminn og vatnið

Gustur allur rennblautur Frakkur finnur hvernig báturinn
er kominn ur mesta straumnum og landið smám saman nálgaðist
Hann er bæði um borð í sjó og á landi bjargandi
flugunum sem farast hér þó sér í lagi sjálfum sér
eilíft stríð og hvergi friður en það verður einnver að fórna sér

dagarnir eru langir

Ný batterí

Heftur með gaddavír
í kjaftinum sem blæðir mig
læstur er lokaður
inni í búri

dýr nakinn ber á mig
og bankar upp á frelsari
ótaminn setur í
ný batteri

og hleður á ný

Við tætum tryllt af stað
út í óvissuna þar
sem við rústum öllu
og reisum aftur

aftur á ný
aftur á bak þar sem við ríðum

Aftur með gaddavír
sem rífur upp gamalt gróið sár
er orðinn ryðguð sál
rafmagnið búið

mig langar að skera
og rista sjálfan mig á hol
en þori það ekki
frekar slekk ég á mér

aleinn á ný

Hjartað hamast

hjartað hamast
eins og alltaf
en nú úr takt við tímann
týndur og gleymdur
heima hjá mér

alveg að springa
  gegnum nefið
sný upp á sveitta
  sængina
stari á ryðið
  sem vex á mér
étur sig inní
  skelina

stend upp mig svimar
  það molnar af mér
ég fer um á fotum
  geng fram hjá mér
klæði mig nakinn
  og fer svo úr
vakinn en sofinn
  sef ekki dúr

hjartað stoppar
  hreyfist ekki
kem gangráð fyrir
  sem ég kíngi og fel
finn startkapal
  og kveiki í mér
sé allt tvöfallt
  tvöfallt svart

kerfisbilun
  heilinn neitar
held?
  áfram að leita
óstjórnandi
  upplýsingar
þarf aftur að mata
  mata mig

tala upphátt og ferðast
inni í mér leita
ég leita af lífi
um stund ég stóð í stað
með von að vin ég vinn upp smá tima
leita að ágætis byrjun

en verð að vonbrigðum

Viðrar vel til loftárása

Ég læt mig líða áfram
í gegnum hausinn
hugsa hálfa leið
afturábak

Sé sjálfan mig syngja
fagnaðarerindið sem
við sömdum saman
og boðuðum út

Við áttum okkur draum
áttum allt
við riðum heimsendi
við riðum leitandi
klifruðum skýjakljúfa
sem síðar sprungu upp
friðurinn úti
ég lek jafnvægi
dett niður

alger þögn ekkert svar en

það besta sem
guð hefur skapað
er nýr dagur

Olsen Olsen

Ágætis Byrjun

bjartar vonir rætast
er við göngum bæinn
brosum og hlæjum glaðir

vinátta og þreyta mætast
höldum uppá daginn
og fögnum tveggia ára bið

fjarlægur draumur fæðist

borðum og drekkum saddir
og borgum fyrir okkur
með þvi sem við eigum í dag

setjumst niður spenntir
hlustum á sjálf okkur slá
í takt við tónlistina

það virðist engin hlusta

þetta er allt öðruvísi
við lifðum í öðrum heimi
þar sem við vorum aldrei osýnileg

nokkrum dögum síðar
við tolum saman á ný
en hljóðið var ekki gott

við vorum sammála um það
sammála um flesta hluti
við munum gera betur næst

þetta er agætis byrjun

Avalon